Framboð til varaformanns

Mikil umbrot einkenna íslenskt samfélag í dag. Þjóðin stendur á krossgötum og við blasir mikið uppbyggingarstarf. Upp eru runnir nýir tímar - tímar sem kalla á breytingar og lausnir.

Að undanförnu hef ég fengið margar áskoranir um að sækjast eftir forystuhlutverki í Framsóknarflokknum á næsta flokksþingi sem haldið verður í janúar 2009. Mér þykir vænt um þá hvatningu og stuðninginn sem í henni felst. Jafnframt tel ég að ungt fólk eigi að ganga fram fyrir skjöldu eins og ástatt er því að næstu kosningar munu fremur en áður snúast um lausnir og hvert beri að stefna til framtíðar. Á þessum tímamótum á Framsóknarflokkurinn að standa undir nafni og sækja fram, vera skýr valkostur í íslenskum stjórnmálum. Ég treysti mér til slíkra verka og vil leggja mitt af mörkum til að sameina framsóknarmenn um nauðsynleg úrlausnarefni og vinna í samhentri forystu fyrir flokkinn.

Að vel ígrunduðu máli er það niðurstaða mín að bjóða mig fram til varaformanns fyrir Framsóknarflokkinn á komandi flokksþingi.

Ég er 29 ára gamall, borinn og barnfæddur Siglfirðingur. Ég hef setið á Alþingi sl. 5 ár og verið treyst þar til ábyrgðarmikilla starfa. Ég hef reynslu af þátttöku í bæði stjórnarmeirihluta og því mikilvæga hlutverki að veita aðhald í stjórnarandstöðu.

Grundvallarhugsjónir mínar kristallast í því að ég vil byggja upp á Íslandi mannvænlegt samfélag samvinnu og jafnaðar þar sem lýðræði og mannréttindi eru í hávegum höfð. Samfélag þar sem allir hafa jöfn tækifæri, óháð efnahag eða búsetu. Þjóðfélag framtíðarinnar þarf að byggja á aukinni þátttöku almennings í allri ákvarðanatöku, raunverulegri þrískiptingu ríkisvaldsins þar sem Alþingi skipar þann sess sem því ber í lagasetningu og aðhaldi gagnvart framkvæmdavaldinu, og heiðarleika þar sem leitast er við að ná fram sanngjörnum niðurstöðum með samvinnu ólíkra afla og hagsmuna. Fólk og velferð þess á að vera í öndvegi þess nýja samfélags sem við munum byggja upp á næstu árum. Forysta Framsóknarflokksins á að sækja fram með fólk í fyrirrúmi og manngildi ofar auðgildi. Að því vil ég vinna.

Reykjavík 24.11.2008

Birkir Jón Jónsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband